Ég heiti Carmen Lea Einarsdóttir og er 2ja ára prakkari en ég er fallegasti engillinn í öllum heiminum ;)
Mamma breytti lykilorðinu mínu því að hún var að komast að því að BARNAPERRI var að vinna með henni í marga mánuði og finnst því ekki óhætt að hafa sama lykilorð !!!
endilega sendið mömmu póst og biðjið um lykilorðið nýja elsa-hrund@simnet.is
Ég fæddist 24. september 2006 og er fyrsta barn mömmu og annað barna pabba, en ég á stóran bróðir sem heitir Róbert Gunnar. Þau öll sjá ekki sólina fyrir mér, ég er svo fullkomin. Fæðingin gekk mjög vel og ég var svo heppin að fá að fæðast í vatni, ég var 52 cm og 3170 grömm eða 12,5 mörk. Ég virðist vera frekar lík pabba mínum en fékk þó eyrun hennar mömmu;) Ég bý ásamt mömmu og pabba á Vatnsendanum í Kópavoginum og okkur líkar mjög vel þar. Mamma mín heitir Elsa Hrund Kristinsdóttir fædd '83 og pabbi minn heitir Einar Örn Gunnarsson fæddur '80
Mamma er konan...
...sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Þegar að maður eldist og ætti að geta hugsað meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum fötum, og laga til í herberginu sínu leyfir mamma manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel um barnið sitt. mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda, þerra tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.
Mamma er besta kona í heimi.
Pabbi er maðurinn...
... sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda að það hafi ekki fæðst barn áður. En það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur og honum finnst skrítið að lítið barn geti ekki sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk, samt veit hann allt! Svo þegar að maður verður aðeins eldri og það er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt finnst honum rosa gaman. Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.
Pabbi er besti maður í heimi.

VOGIN
23 september - 23 október
Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginna að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: "Hvað finnst þér?" Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.
Isabella
Thelma Ósk
Vilhelm Leví
Matthildur Dan
Linda María
Máni
Canada fjölskyldan
Sölvi Fannar
Kamilla
Tígri litli
Axel Örn
Jóhann Fróði
Kristófer Karl og Júlía Marín

